Heimild: Heimasíða KSÍ
„Okkur lýst mjög vel á þessar aðstæður og það hefur verið eftirvænting að koma hingað. Það er gaman að sjá þetta með eigin augum," segir Ásmundur Haraldsson, þjálfari kvennalandsliðsins.
Liðið er í Hollandi og dvelur á sama hóteli og það verður á þegar lokakeppni EM fer fram í júlí.
Liðið er í Hollandi og dvelur á sama hóteli og það verður á þegar lokakeppni EM fer fram í júlí.
„Þetta er stórglæsilegt hótel og allt svæðið í kring. Það eru náttúrulega alltaf einhverjir hlutir sem þarf að laga en þess vegna erum við hér núna, þetta er svona generalprufa fyrir sumarið þannig að það verður allt tipp topp þegar við komum hérna í sumar."
Ísland mætir heimakonum í Hollandi í vináttuleik á morgun klukkan 17 að íslenskum tíma.
Ásmundur og Freyr Alexandersson sáu Holland keppa vináttuleik við Frakka á fösrudaginn. Fyrsti leikur Íslands á lokamótinu í sumar verður gegn Frökkum þann 18. júlí.
Ásmundur segir að Frakkland hafi verið ívið sterkara í leiknum á föstudag. „En Hollendingarnir eru með mjög gott lið og hefðu með smá heppni getað nælt sér í jafntefli eða jafnvel sigur í leiknum," segir Ásmundur.
Óskar Örn Guðbrandsson, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, ræddi við Ásmund og má sjá viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir