Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 10. apríl 2018 18:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sara Björk: Fyrri hálfleikurinn skelfilegur á köflum
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði, var sátt eftir 5-0 sigur á Færeyjum á útivelli í undankeppni HM í dag.

Lestu um leikinn: Færeyjar 0 -  5 Ísland

„Við erum sáttar, kannski ekki með alla frammistöðuna í leiknum en með sigur og fimm mörk," sagði Sara eftir leikinn.

Þrátt fyrir að leikurinn hafi endað 5-0 var hann langt frá því að vera gallalaus, sérstaklega var fyrri hálfleikurinn ekki nægilega góður.

„Fyrri hálfleikurinn var skelfilegur á köflum en við rifum okkur upp og komum sterkari í seinni hálfleikinn."

Ísland er í öðru sæti riðils síns, tveimur stigum á eftir Þýskalandi. Ísland á leik til góða á Þýskaland. Framundan í sumar og haust eru heimaleikir gegn Slóveníu, Þýskalandi og Tékklandi. Þessir leikir munu skera úr um það hvort Ísland fer á HM eða ekki en möguleikinn er klárlega til staðar og hefur sjaldan ef aldrei verið betri.

„Þetta lítur vel út, við eigum þrjá heimaleiki eftir og það er sterkur kostur fyrir okkur. Við ætlum að fylla Laugardalsvöllinn. Við erum gífurlega spenntar stelpurnar að spila heima," sagði Sara að lokum.

Viðtalið í heild sinni er hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner