Shane Duffy, varnarmaður Norwich, hefur verið ákærður fyrir að keyra undir áhrif áfengis síðasta mánudagskvöld.
Hinn 32 ára gamli Duffy var handtekinn eftir að hafa lent í árekstri síðasta mánudag. Sem betur fer þá slasaðist enginn í slysinu.
Duffy þarf að mæta fyrir dóm í Norwich í júlí, en hann mældist með mikið magn áfengis í blóði sínu þegar hann var handtekinn í kjölfarið á árekstrinum.
Þetta gerist nokkrum dögum áður en Norwich, félagslið Duffy, hefur leik í umspilinu um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Norwich mætir Leeds í undanúrslitum umspilsins.
Talsmaður Norwich segir að félagið sé að skoða málið innan sinna herbúða.
Duffy gekk í raðir Norwich síðasta sumar og hefur spilað 34 keppnisleiki á yfirstandandi leiktíð.
Athugasemdir