Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 10. júlí 2017 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neymar: Ég gæti farið til Man Utd eða Eibar
Afar ólíklegt þykir að Neymar fari frá Barcelona.
Afar ólíklegt þykir að Neymar fari frá Barcelona.
Mynd: Getty Images
Neymar, leikmaður Barcelona, er stundum orðaður við Manchester United. Það þykir hins vegar ólíklegt að hann fari þangað í náinni framtíð, hann er lykilmaður í plönum Barcelona.

Neymar er samningsbundinn Barcelona næstu árin, en hann var í dag spurður út í framtíð sína.

„Hver veit hvað mun gerast á morgun?" sagði Neymar. „Ég er mjög ánægður núna, en allt getur gerst, hver veit?"

Hann var síðan spurður að því hvort það væri möguleiki á því að hann færi til Manchester United.

„Já... eða til Eibar!" sagði Brasilímaðurinn hress.
Athugasemdir
banner
banner
banner