Arnar Már Guðjónsson, leikmaður ÍA var að vonum ánægður með sigurinn á KA í kvöld. ÍA sigraði 2-0.
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 0 KA
„Mér fannst við bara mjög flottir í dag. Vorum mjög solid varnarlega og vorum að brake-a mjög vel á þá og ég er bara mjög ánægður," sagði Arnar.
Það kom einhverjum á óvart að Garðar Gunnlaugsson hafi verið settur á bekkinn en í hans stað voru ungir strákar frammi, Stefán og Steinar og áttu þeir góðan leik.
„Þeir nýttu sénsinn mjög vel og það er nákvæmlega það sem þeir eiga að gera. Þeir eru mjög góðir í fótbolta, þeir verða bara að átta sig á því.
Það hefur lítið gengið upp hjá Skagamönnum í sumar og mörg atriði sem falla ekki með þeim. Þegar Stefán Teitur klúðraði dauðafæri og Viktor klúðraði vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiksins fór örlítið um Arnar.
„Það kemur alltaf upp þessi hugsun; Ah ekki aftur maður. En við erum búnir að læra að takast á við það og halda áfram."
Staðan er erfið hjá Skagamönnum, en hún er ekki vonlaus. Trúin er enn til staðar á Skaganum.
„Að sjálfsögðu. Þetta eru bara fjórir fótboltaleikir og við erum allir drullugóðir í fótbolta. Ég sé enga ástæðu fyrir að við getum unnið alla leikina
Athugasemdir