Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 10. september 2017 19:27
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Óli Stefán um Evrópu: Ég nenni ekki að spá í það
Óli Stefán nennir lítið að spá í Evrópu
Óli Stefán nennir lítið að spá í Evrópu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var Óla Stefáni Flóventssyni, þjálfara Grindavíkur hulin ráðgáta að lið hans hafi ekki náð að skora gegn Íslandsmeisturum FH í dag en FH-ingar unnu leikinn 1-0.

„Þegar stórt er spurt. Ég skil það ekki. Við vorum búnir að fá fjóra 100% sénsa að skora áður en þeir fá sinn fyrsta og skora. En í svona bardaga, gegn svona liðum þá liggur kannski munurinn þar á gæðum," sagði Óli Stefán.

Óli Stefán var ánægður með spilamennsku Grindavíkur í dag en hundsvekktur yfir því að fá ekkert úr leiknum.

„Það segir kannski margt að ég er hundsvekktur að hafa ekki unnið þennan leik. Við ætluðum að koma hingað og vinna og spiluðum þangað. Við spiluðum eins og sigurvegarar í dag."

Eftir leik kvöldsins minnkuðu líkur Grindavíkur á Evrópusæti all svakalega en FH er komið þremur stigum á undan, og á auk þess leik til góða. Óli Stefán nennir lítið að vera að spá í þessari Evrópubaráttu.

„Ég nenni ekki að spá í það. Ég nenni ekki að vera að velta fyrir mér hvað hin liðin eru að gera í kringum mig. Það gerir mann alveg brjálaðan að vera velta þessu öllu fyrir sig að ég nenni því ekki
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner