Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 10. september 2017 20:56
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Túfa: Einn slakasti leikur okkar á tímabilinu
Tufa var alls ekki ánægður með spilamennskuna í kvöld
Tufa var alls ekki ánægður með spilamennskuna í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Srdjan Tufegdzic, þjálfari KA var allt annað en ánægður með leik sinna manna í tapinu gegn ÍA í kvöld.

Lestu um leikinn: ÍA 2 -  0 KA

„Það vantaði bara allt. Mér fannst við bara ekki vera klárir í þennan slag í dag. Í þessari deild er það þannig að ef þú ert ekki klár er enginn séns á að vinna leiki, sama á móti hvaða liði þú ert að spila. Þetta var einn slakasti leikur okkar á tímabilinu," sagði Tufa.

Guðmann Þórisson var á bekknum hjá KA í kvöld en hann hefur verið frá vegna meiðsla í allt sumar.

„Það er erfitt að segja hvort hann sé 100% eftir að hafa ekki spilað í þrjá mánuði en hann er 100% heill og það er mjög gott. Hann er búinn að æfa núna á fullu í þrjár vikur og ég er mjög ánægður með að hann sé kominn til baka."

Callum Williams fékk að líta á rauða spjaldið undir lokin og er Tufa ekki alveg viss hvort hann sé ósammála dómnum.

„Kannski er það of grimmt að reka hann bara útaf. Ég þarf bara að sjá þetta betur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner