Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 10. október 2015 14:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Reuters 
Fyrrverandi eiginkona kemur Blatter til varnar
Mynd: Getty Images
Graziella Blatter-Bianca er fyrrverandi eiginkona Sepp Blatter, fráfarandi forseta FIFA, sem hefur verið settur í bann af siðanefnd FIFA.

Graziella, sem var höfrungaþjálfari, er vinkona dóttur Blatter og voru þau gift í rúmt ár áður en þau skildu árið 2004.

„Núna vilja allir krossfesta hann og enginn vill viðurkenna allt það góða sem hann hefur gert fyrir knattspyrnuheiminn," sagði Bianca við Tages-Anzeiger blaðið.

„Hann var sérstaklega iðinn við að koma kvennaknattspyrnunni á framfæri og átti stóran þátt í fjölgun kvenkyns starfsmanna, til dæmis dómara, í kringum karlaknattspyrnu."
Athugasemdir
banner
banner
banner