lau 10. október 2015 14:03
Elvar Geir Magnússon
Michael Præst yfirgefur Stjörnuna
Michael Præst yfirgefur Stjörnuna.
Michael Præst yfirgefur Stjörnuna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan sendi frá sé þessa yfirlýsingu:

Stjarnan og Michael Præst hafa ákveðið að Præst leiki ekki með Stjörnunni á komandi keppnistímabili.

Samningur Præst við Stjörnuna rennur út um áramótin en aðilar hafa komist að þeirri niðurstöðu að samningurinn verði ekki framlengdur og skilja því leiðir. Præst hefur leikið með Stjörnunni síðastliðin 3 keppnistímabil eða allt frá því að hann kom til Íslands frá FC Fyn sem lék í dönsku fyrstu deildinni.

Knattspyrnudeild Stjörnunnar þakkar Michael Præst fyrir framlag hans til félagsins á síðustu árum en hann á stóran þátt í að koma félaginu á þann stall sem það er í dag. Michael var lykilmaður í liðinu sem vann fyrsta Íslandsmeistaratitil Stjörnunnar og komst í langt í Evrópukeppni. Hann gaf allt sem hann átti í hvern einasta leik með Stjörnunni sem mátti jafnvel hvað best sjá þegar hann sleit krossband í annað skiptið á ferlinum í sigurleik gegn Lech Poznan þar sem hann vara lykilmaður. Fyrir framlag hans verður Stjarnan ævinlega þakklát.

Frá Michael Præst: „Ég vil nýta tækifærið og þakka aðdáendum, liðsfélögum, þjálfurum og öllum þeim sem standa að liðinu fyrir allan þann stuðning sem ég og fjölskylda mín höfum notið þessi ár hjá Stjörnunni. Ég átti frábæran tíma hjá Stjörnunni enda hef ég verið hluti af mögnuðum hópi Stjörnumanna sem skapað hefur minningar sem mér mun þykja vænt um fyrir lífstíð. Ákvörðunin að setja punkt á þennan hluta ferilsins hefur verið mér mjög erfið en stundum til þess að þróast frekar sem leikmaður þarf að taka erfiðar ákvarðanir sem leiða af sér nýjar áskoranir. Ákvarðanirnar um að koma til Stjörnunnar á sínum tíma og að framlengja samninginn minn við félagið þá hafa báðar reynst þær bestu á mínum ferli og ég vona að ég sé aftur að gera rétt. Takk Fyrir mig“
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner