banner
   lau 10. október 2015 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndbönd: Persie ekki að njóta sín hjá Fenerbahce
Mynd: Getty Images
Robin van Persie er ekki að njóta lífsins neitt sérstaklega mikið hjá Fenerbahce í Tyrklandi.

Hollenski sóknarmaðurinn viðurkenndi það í viðtali fyrir nokkrum vikum og nú hafa myndbönd af honum sprottið upp þar sem hann er augljóslega ósáttur með að fá ekki að spila.

Van Persie er búinn að gera þrjú mörk í sjö deildarleikjum fyrir Fenerbahce og eitt mark í fimm leikjum í Evrópukeppnum.

Van Persie var seldur ódýrt til Fenerbahce í sumar og hefur ekki tekist að láta ljós sitt skína almennilega.

Aðra sögu er þó hægt að segja um Luis Nani sem fór einnig til Fenerbahce í sumar. Hann er búinn að vera frábær, hefur skorað jafn mikið og Persie og er búinn að vera duglegur að leggja upp.




Athugasemdir
banner
banner