Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mán 10. október 2016 18:40
Aron Elvar Finnsson
Donni: Ekki í boði að keyra á milli með karlaliðið
Donni er hér til vinstri.
Donni er hér til vinstri.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Halldór Jón Sigurðsson, eða Donni, eins og hann er alltaf kallaður, er nýr þjálfari Þórs/KA. Hann þjálfaði karlalið Þórs síðustu 2 ár en hætti nú í haust af fjölskylduástæðum.

„Ég ákvað að hætta með karlalið Þórs í rauninni af fjölskylduástæðum, við þurftum að flytja úr bænum og fluttum svo sannarlega úr bænum og búum á Sauðárkróki eins og staðan er í dag. Það var voðalega einfalt að hálfu knattspyrnudeildar Þórs, því frábæra fóki sem er þar, að það var ekki í boði að keyra á milli með karlalið Þórs. Þór/KA hins vegar fannst það bara ágætis hugmynd og þau í rauninni gúdderuðu það að ég keyri á milli og mun halda áfram að búa á Sauðárkróki, allavega í óákveðinn tíma,“ sagði Donni.

„Þór/KA hefur verið í fremstu röð í kvennaknattspyrnu núna í ég veit ekki hvað mörg ár, gott ef ég las ekki einhvers staðar níu ár í topp fjórum. Ég held að það sé engin spurning að við þurfum að halda áfram þessu góða starfi sem hér hefur verið unnið, og bæta það. Ég er ekki hérna til þess að vera í einhverri meðalmennsku, við erum að fara bara áfram og ofar og við ætlum bara að reyna að vinna titla."

Viðtalið við Donna má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner