Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 11. janúar 2018 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Carragher skaut Phil Neville á bólakaf
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher birti skemmtilega mynd af sér á Instagram fyrr í dag þar sem hann stendur við hliðina á Virgil van Dijk, nýjasta miðverði Liverpool.

Philip Neville ákvað að skrifa ummæli undir myndina þar sem hann spurði Carragher hvort hann byggi á æfingasvæði Liverpool.

Carragher var ekki lengi að svara Neville með algjörri neglu.

„Það er alltaf tekið á móti mér með opnum örmum hérna, ekki eins og með þig og Carrington (æfingasvæði Man Utd) eftir að þið Moyes skemmduð allt!!!"

Viðbrögðin leyndu ekki á sér þar sem þúsundir hafa líkað við ummæli Carragher, flestir eflaust dyggir stuðningsmenn Liverpool.

Phil Neville er ekki beint elskaður af stuðningsmönnum Liverpool, enda eru Manchester United og Everton einu félögin sem hann hefur leikið fyrir.

Carragher deildi myndinni með fylgjendum sínum á Twitter og tók sérstaklega fram að hann stæði ekki ofan í holu, heldur væri hollenski miðvörðurinn einfaldlega svona stór.




A post shared by Jamie Carragher (@23_carra) on


Athugasemdir
banner
banner
banner