Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 11. febrúar 2016 09:00
Arnar Geir Halldórsson
Blanc framlengir við PSG
Gengur vel
Gengur vel
Mynd: Getty Images
Laurent Blanc, stjóri PSG hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem nær til júní 2018.

Blanc tók við franska stórveldinu árið 2013 og hefur stýrt liðinu til sigurs í frönsku deildinni tvö ár í röð.

„Ég vil þakka félaginu fyrir það traust sem mér er sýnt. Allt frá því ég tók við hef ég litið á það sem heiður að fá að stýra þessu liði og fá tækifæri til að vinna með frábærum leikmönnum.”

„Ég vona að ég geti haldið áfram að gera Paris Saint-Germain að góðum og virðulegum fulltrúa franska fótboltans,”
sagði Blanc þegar tilkynnt var um framlenginguna.

Allt bendir til þess að PSG muni vinna deildina í ár þar sem liðið hefur 24 stiga forskot á toppi deildarinnar eftir 25 umferðir.




Athugasemdir
banner
banner
banner