Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 11. febrúar 2016 12:11
Magnús Már Einarsson
Payet að gera nýjan samning við West Ham
Mynd: Getty Images
Slaven Bilic, stjóri West Ham, segir að Dimitri Payet sé nálægt því að framlengja samning sinn við félagið.

Payet hefur slegið í gegn hjá West Ham síðan hann kom til félagsins frá Marseille í sumar.

Orðrómur hefur verið um að félag í Kína ætli að bjóða 38 milljónir punda í Payet en Bilic segir að hann sé ekki að fara fet.

„Við erum mjög nálægt því að gera nýjan samning við Dimitri. Báðir aðilar hafa sama vilja og það er að hann verði áfram hjá West Ham," sagði Bilic.

„Ef þú ert að spila eins og hann er að gera þá sýna félög áhuga en við ætlum að gera allt til að halda honum hjá okkur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner