Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 11. febrúar 2016 14:00
Magnús Már Einarsson
Pearson gæti tekið við Derby í sumar
Mynd: Getty Images
Derby hefur haft samband við Nigel Pearson með það fyrir augum að hann taki við liðinu í sumar.

Paul Clement var óvænt rekinn í vikunni þrátt fyrir að Derby sé í 5. sæti í Championship deildinni.

Darren Wassall hefur verið ráðinn stjóri út tímabilið og hann fær þá tíma til að sanna sig.

Forráðamenn Derby horfa hins vegar einnig til Pearson og hann gæti tekið við í sumar.

Pearson var rekinn frá Leicester síðastliðið sumar en hann hafði áður komið liðinu upp í ensku úrvalsdeildina.
Athugasemdir
banner
banner
banner