Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 11. febrúar 2016 17:00
Magnús Már Einarsson
Skrifar Eiður Smári undir hjá Molde á morgun?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt fréttum frá Noregi mun norska félagið Molde kynna nýjan leikmann til sögunnar á morgun.

Orðrómur er um að þar sé að ræða Eið Smára Guðjohnsen.

Eiður Smári er án félags eftir að hafa yfirgefið kínverska úrvalsdeildarliðið Shijiazhuang Ever Bright undir lok síðasta árs.

Ole Gunnar Solskjær þjálfar Molde en liðið endaði í 6. sæti á síðasta tímabili eftir að hafa orðið meistari árið áður.

Ole Gunnar staðfesti á dögunum áhuga á að fá Eið í sínar raðir og nú er Molde mögulega að ganga frá samningi við íslenska landsliðsmanninn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner