Íslenska U21-landsliðið stóðst ekki lokaprófið. Liðið tapaði 2-4 fyrir Úkraínu í undankeppni EM en sigur hefði fleytt strákunum okkar í lokamótið.
Lestu um leikinn: Ísland U21 2 - 4 Úkraína
„Þetta er grátleg niðurstaða. Menn voru svo peppaðir og gíraðir í leikinn, við ætluðum alla leið til Póllands," sagði Elías Már Ómarsson, besti leikmaður Íslands í leiknum.
Ísland var 1-0 yfir í hálfleik en í seinni hálfleiknum fór allt í rugl.
„Seinni hálfleikurinn var ekki góður. Við erum vanir því að geta haldið fókus, þetta var bara ekki góður seinni hálfleikur. Við vitum það manna best."
Hann segir erfitt að kyngja þessari niðurstöðu.
„Ég gæti trúað því að menn svekkja sig á þessu lengi. Það er ekki oft sem maður er í þessari stöðu. Maður þarf að manna sig upp og halda áfram að gera góða hluti með félagsliði sínu," sagði Elías Már.
Athugasemdir