Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   þri 11. október 2016 19:12
Arnar Daði Arnarsson
Laugardal
Hjörtur: Synd að klára þetta ekki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hjörtur Hermannsson fyrirliði íslenska U21 árs landsliðsins var að vonum svekktur eftir 4-2 tap liðsins gegn Úkraínu í dag, í lokaleik liðsins í undankeppni fyrir EM.

Tapið þýðir að liðið endar riðilinn í 3. sæti og situr þar með eftir með sárt ennið, en sigur hefði þýtt að liðið myndi leika á EM í Póllandi næsta sumar.

Lestu um leikinn: Ísland U21 2 -  4 Úkraína

„Það var mjög þungt í mönnum og er enn og mun líklega sitja í okkur fram eftir vikunni en þegar lengra líður þá held ég að við getum litið stoltir til baka á þessa undankeppni, við erum í séns fram í síðasta leik. Okkur fannst við alveg eiga möguleikana á að snúa þessu við seint í leiknum en svo er sem varð."

En hvað fór úrskeiðis?

„Það er ótal margir hlutir sem klikka í dag. Einna helst seinni hálfleikurinn, sem er einfaldlega ekki nógu góður. Við byrjum á hælanum og ætlum að sitja á 1-0 stöðunni, sem gengur erfiðlega gegn eins sterku liði og Úkraína er, og í þessu veðri, þeir með vindinn í bakið. Svona er fótboltinn stundum," sagði Hjörtur sem var ánægður með fyrri hálfleikinn, en liðið var 1-0 yfir í hálfleik.

„Við lögðum allt í þetta og eigum frábæran fyrri hálfleik. Ég hef líklega aldrei séð okkur spila jafn góðan fótbolta í fyrri hálfleik á köflum. Það er synd að klára þetta ekki."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner