Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
   þri 11. október 2016 19:22
Magnús Már Einarsson
Rúnar Alex: Fáránlegt að við höfum náð svona langt
Rúnar svekktur eftir leik.
Rúnar svekktur eftir leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst margir leikmenn ekki hitta á daginn sinn. Það var mikið af klaufalegum mistökum sem við höfum ekki gert í undankeppninni. Við hefðum getað verið 5-0 yfir í hálfleik en svo fáum við á okkur ömurlegt mark," sagði Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður U21 árs landsliðsins, eftir 4-2 tap gegn Úkraínu í kvöld.

Tapið gerði út um vonir Íslands um sæti í lokakeppni EM á næsta ári. Andriy Boryachuk skoraði fyrsta mark Úkraínu með skoti utan af kanti. Rúnar segist hafa átt að gera betur þar.

„Á góðum degi tek ég þetta. Þetta verður tíu sinnum erfiðara þegar það er rigning í augun á manni og vindur en það er engin afsökun. Á góðum degi á ég að taka þetta."

Í undankeppninni sigraði U21 liðið meðal annars firnasterkt lið Frakka en 3. sætið varð niðurstaðan í riðlinum eftir lokaumferðin í dag.

„Sama þó að við töpuðum þessum leik í dag þá förum við út úr þessu sem hetjur. Það bjóst enginn við því að við myndum ná svona langt. Það er í raun fáránlegt að við höfum náð svona langt en það er ógeðslega svekkjandi að ná ekki að klára þetta."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner