Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   þri 11. október 2016 19:27
Elvar Geir Magnússon
Tryggvi Guðmunds: Slæmar ákvarðanir leikmanna
Mynd: Fótbolti.net
„Þeir geta í raun sjálfum sér um kennt," sagði Tryggvi Guðmundsson, sérfræðingur Fótbolta.net, um 2-4 tapið gegn Úkraínu í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland U21 2 -  4 Úkraína

„Fyrri hálfleikur var í sjálfu sér fínn og við áttum að skora meira en eitt mark. Slæmar ákvarðanir leikmanna gerðu það að verkum að við vorum bara 1-0 yfir í hálfleik."

Ef Kristján Flóki hefði sett Elías í gegn í fyrri hálfleik í stað þess að skjóta af löngu færi, sem var að mínu mati mjög léleg ákvörðun, þá hefði Elías líklega klárað þetta 2-0 og við værum á leið til Póllands."

„Við fáum á okkur mjög klaufalegt jöfnunarmark, bæði brotið í aðdragandanum og svo verður Rúnar Alex að taka þetta mark á sig,"

Oliver Sigurjónsson og Ævar Ingi Jóhannesson gátu ekki spilað í kvöld vegna meiðsla og var sárt saknað.

„Oliver er dreifari góður og góður knattspyrnumaður. Heiðar Ægis náði ekki að skila sendingum á samherja, ég hefði treyst Oliver fyrir því," sagði Tryggvi en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner