„Ég er ekkert spes núna, ég var einu sinni ágætur," segir landsliðsmiðvörðurinn Ragnar Sigurðsson, aðspurður að því hvernig hann er í golfi.
Landsliðsmennirnir eru þessa stundina í Katar, en á milli æfinga hafa leikmenn notið tímans vel. Í gær var frídagur og þá var farið í eyðimörkina og einhverjir leikmenn skemmtu sér vel í golfi.
„Kári, Arnór Smára og Gylfi voru góðir," sagði Ragnar um gærdaginn í golfinu.

Ragnar, sem er fastamaður í vörn Íslands, kom ekkert við sögu gegn Tékkum í vikunni. Hann er ekki viss um að hann komi til með að spila gegn Katar á þriðjudaginn heldur.
„Ég veit það ekki. Þetta er öðruvísi ferð, það er rólegra yfir þessu og það eru margir að fá sénsa."
„Þetta er búið að vera mjög þægilegt og mjög skemmtilegt, en við reynum samt að halda góðum standard þó það sé kannski aðeins minni alvara í þessu. Þetta hefur verið frábær ferð hingað til."
Ragnar er á mála hjá Rubin Kazan í augnablikinu, en það hefur ekki verið að ganga vel hjá liðinu í undanförnum leikjum. Hvernig taka stuðningsmenn í Rússlandi því þegar liðinu gengur illa?
„Það eru að mæta 2-3000 manns á leiki hjá okkur, á risavelli, þannig að það er ekki mikil pressa þannig lagað séð, en frá liðinu, þjálfurun og öllum hinum er mikil pressa, reiði og stress í gangi. Við þurfum að rífa okkur í gang," sagði Ragnar.
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir