Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. janúar 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Þrír lykilmenn framlengja við Keflavík
Mynd: Keflavík
Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir, Kristrún Ýr Holm og Þóra Kristín Klemensdóttir eru búnar að framlengja samninga sína við Keflavík.

Þær gengdu allar mikilvægum hlutverkum síðasta sumar og komu þær þrjár við sögu í öllum deildarleikjum Keflvíkinga í 1. deildinni.

Arndís var valin á bekkinn í liði tímabilsins úr 1. deild kvenna, en Keflavík var fjórum stigum frá því að komast upp í Pepsi-deildina.

Arndís er elst þeirra, fædd árið 1994. Kristrún er fædd 1995 og Þóra er yngst, fædd 1998.
Athugasemdir
banner
banner
banner