Þóttur 0-1 Leiknir
0-1 Sjálfsmark (‘7)
0-1 Sjálfsmark (‘7)
Þróttur tók á móti nýkrýndum Reykjavíkurmeisturum, Leikni, í seinni leik kvöldins í A deild Lengjubikarins í Egilshöll.
Það tók Leiknismenn ekki nema 7 mínútur að komast yfir en þá urðu Þróttarar fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir góðan undirbúning Elvars Páls Sigurðssonar.
Bæði lið fengu ágæt færi í leiknum en markverðir liðanna áttu góðan dag og komu í veg fyrir að mörkin yrðu fleiri.
Þetta reyndist eina mark leiksins og lauk því leiknum með sigri Leiknismanna.
Athugasemdir