Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. febrúar 2016 09:03
Magnús Már Einarsson
Sandra Sigurðardóttir í Val (Staðfest)
Mynd: Valur
Valur hefur keypt markvörðinn Söndru Sigurðardóttir í sínar raðir frá Stjörnunni.

Sandra, sem er 29 ára gömul, skrifaði undir þriggja ára samning við Val.

Sandra hefur verið í íslenska landsliðshópnum undanfarin ár og í lykilhlutveri hjá Stjörnunni en hún á 249 leiki að baki í efstu deild.

„Ég er mjög spennt að þetta mál sé loksins búið að klárast og ég get byrjað þetta," sagði Sandra í viðtali við heimasíðu Vals.

Hér að neðan má sjá viðtal sem Ragnar Vignir hjá Valur.is tók við Söndru.


Athugasemdir
banner
banner