Steinþór Freyr Þorsteinsson hefur gengið til liðs við Sandnes Ulf á láni frá Viking.
Steinþór Freyr er í miklum metum hjá Sandnes Ulf en hann lék með liðinu frá 2011 til 2013 áður en Viking fékk hann í sínar raðir.
Á síðasta tímabili átti Steinþór ekki fast sæti í liði Viking og hann er nú farinn til Sandnes Ulf á láni í norsku B-deildina.

Steinþór Freyr er þrítugur en hann er uppalinn hjá Breiðabliki. Hann lék með Stjörnunni við góðan orðstír áður en hann fór út til Noregs í atvinnumennsku.
Athugasemdir