Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. febrúar 2016 21:37
Óðinn Svan Óðinsson
Þýskaland: Mainz sigraði Schalke
Schalke tapaði dýrmætum stigum í kvöld
Schalke tapaði dýrmætum stigum í kvöld
Mynd: Getty Images
Mainz 2 - 1 Schalke 04
1-0 Gaetan Bussmann ('33 )
1-1 Younes Belhanda ('46 )
2-1 Julian Baumgartlinger ('79 )

Einn leikur fór fram í þýsku deildinni í kvöld en þá mættust Mainz 05 og Schalke 04.

Leikurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið en þau berjast um umspilssæti í meistaradeild Evrópu að ári.

Skemmst er frá því að segja að Mainz sigraði leikinn eftir að hafa skorað sigurmarkið undir lok leiks.

Gaetan Bussmann kom heimamönnum yfir eftir um hálftíma leik en Younes Belhanda jafnaði metin strax í byrjun seinni hálfleiks. Það var svo Austurríkismaðurinn knái Julian Baumgartlinger sem skoraði sigurmarkið og tryggði Mainz þrjú mikilvæg stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner