Jose Mourinho hefur opinberað það að hann og Antonio Conte hafi grafið stríðsöxina.
Þeir tveir létu skotin dynja á hvor öðrum í upphafi ársins, Mourinho kallaði Conte trúð og sá ítalski svaraði með því að Portúgalinn væri að glíma við minnistap, svo eitthvað sé nefnt.
Þeir tveir létu skotin dynja á hvor öðrum í upphafi ársins, Mourinho kallaði Conte trúð og sá ítalski svaraði með því að Portúgalinn væri að glíma við minnistap, svo eitthvað sé nefnt.
Sjá einnig:
Conte segir að Mourinho glími við minnistap
„Það hafa verið vandamál milli okkar en nú verðum við að gleyma þeim. Hann stýrir Chelsea og ég stýri Manchester United," segir Mourinho.
Það var áberandi að vel fór á með þeim þegar United og Chelsea mættust nýlega.
„Við tókumst í hendur og svo er bara horft fram á veginn. Við tókum rétt á þessu."
Athugasemdir