,,Þetta er mikill léttir því þetta er stórt félag," sagði Alan Pardew stjóri Newcastle eftir 2-1 sigur liðsins á QPR í dag en með þeim úrslitum varð ljóst að liðið heldur sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni.
Pardew gerði átta ára samning við Newcastle fyrr á tímabilinu en síðan þá hefur gengi liðsins verið dapurt. Sigurinn í dag gulltryggir þó úrvalsdeildarsæti á næsta tímabili.
,,Við náðum sigrinum sem við þurftum. Meiðslin sem við höfum lent í á þessu tímabili hafa verið hræðileg. Svona ár endar yfirleitt á falli."

,,Við vorum stressaðir og það sást á leik okkar. Við þurftum virkilega á fyrsta markinu að halda."