Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   sun 12. maí 2013 23:54
Lárus Ingi Magnússon
Baldur Sig: Okkur Jónasi líður vel saman á miðjunni
Baldur í leiknum í kvöld.
Baldur í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
,,Mér leið gríðarlega vel þegar ég spilaði hérna og líður alltaf vel þegar ég kem hérna með KR. Það var virkilega gaman að setja tvö í dag og sigra leikinn," sagði Baldur Sigurðsson miðjumaður KR sem var frábær í 2-0 sigri á Keflavík í kvöld og skoraði bæði mörkin.

,,Þegar við náum að skora seinna markið getum við farið að beita meira skyndisóknum og það er auðveldara að halda honum svo við róuðumst aðeins. Það er alltaf viss pressa að vera með eitt mark og eiga á hættu að fá eitt í bakið."

,,Sérstaklega í byrjun móts þegar menn eru að finna sig. Seinni hálfleikur var betri af okkar hálfu enda náðum við að laga hluti sem okkur fannst að í fyrri hálfleik."


Baldur var á miðjunni með Jónasi Guðna Sævarssyni en Brynjar Björn Gunnarsson var ekki með.

,,Þeir ellefu sem byrja verða að standa sig og ég og Jónas spiluðum mikið saman á miðjunni hjá Keflavík á sínum tíma. Okkur líður vel saman og erum góðir vinir og þekkjum hvorn annan mjög vel."
Slapp
banner
banner