Heimild: BBC
Franska félagið Paris St-Germain hefur boðið David Beckham nýjan eins árs samning.
Hinn 38 ára gamli Beckham gekk í raðir PSG í janúar og samdi þá út tímabilið.
Beckham ákvað á sama tíma að láta öll laun sín renna til góðgerðarmála en um er að ræða meira en eina milljón punda.
Hinn 38 ára gamli Beckham gekk í raðir PSG í janúar og samdi þá út tímabilið.
Beckham ákvað á sama tíma að láta öll laun sín renna til góðgerðarmála en um er að ræða meira en eina milljón punda.
Ólíklegt er að Beckham geri slíkt það sama ef hann verður áfram hjá PSG.
Beckham liggur nú undir feld og búast má við að hann taki ákvörðun um framtíð sína í þessari viku.


