Michael Owen framherji Stoke City spilar sinn síðasta heimaleik á knattspyrnuferlinum í dag þegar liðið tekur á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni en leikurinn hófst 12:30.
Owen vaknaði við leiðindafréttir í morgun því þegar hann leit út um gluggann sá hann að búið var að hella hveiti og eggjum yfir Mercedes C63 bifreið hans.
,,Þetta er það sem ég mun sakna þegar ég legg skóna á hilluna! Virðist sem mér seinki á leið í leikinn. #egg&hveiti," skrifaði Owen á Twitter síðu sína í morgun en hann vill kenna liðsfélögum sínum um ósköpin.
,,Þetta er löng vika drengir. Hefndin liggur í loftinu! Þeir helstu grunuðu: Whitehed og Whelan, Huth er möguleiki líka," hélt Owen áfram og sagði svo:
,,Walters er möguleiki. Aðrir sem ekki má útiloka: Crouch, Ethrington."



