Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 12. maí 2013 14:47
Elvar Geir Magnússon
Eiður Smári lagði upp - Alfreð tók bronsskóinn í Hollandi
Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen.
Mynd: Kristján Bernburg
Kolbeinn Sigþórsson.
Kolbeinn Sigþórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Club Brugge komst upp að hlið Zulte-Waregem í belgísku deildinni í dag með því að vinna 4-2 útisigur gegn Standard Liege. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn sem varamaður og lagði upp fjórða mark Club Brugge með sinni fyrstu snertingu.

Zulte-Waregem vann 3-2 sigur gegn Lokeren í gær en Ólafur Ingi Skúlason var ónotaður varamaður hjá Zulte-Waregem. Anderlecht getur komist á topp deildarinnar í dag með sigri gegn Genk.

Lokaumferð hollensku úrvalsdeildarinnar fór fram í dag.

Kolbeinn Sigþórsson skoraði fyrra mark Ajax þegar hollensku meistararnir báru sigurorð af Groningen 2-0. Kolbeinn skoraði sjö deildarmörk á tímabilinu.

Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn fyrir AZ Alkmaar og Aron Jóhannsson kom inn sem varamaður þegar hálftími var eftir þegar liðið tapaði fyrir Willem 2-0. AZ endaði í tíunda sæti.

Alfreð Finnbogason og félagar í Heerenveen töpuðu fyrir Roda 1-0. Alfreð skoraði 24 mörk í deildinni og endaði sem þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar. Heerenveen endaði í áttunda sæti.

Þá lék Guðlaugur Victor Pálsson allan tímann fyrir NEC Nijmegen sem tapaði fyrir Waalwijk á heimavelli 2-1. NEC endaði í fimmtánda sæti og hélt sæti sínu.
Slapp
banner
banner