Stoke City 1 - 2 Tottenham
1-0 Steven N'Zonzi ('3 )
1-1 Clint Dempsey ('20 )
1-2 Emmanuel Adebayor ('82 )
Rautt spjald:Charlie Adam, Stoke City ('47)
1-0 Steven N'Zonzi ('3 )
1-1 Clint Dempsey ('20 )
1-2 Emmanuel Adebayor ('82 )
Rautt spjald:Charlie Adam, Stoke City ('47)
Emmanuel Adebayor tryggði Tottenham þrjú dýrmæt stig þegar liðið vann 1-2 sigur á Stoke City í ensku úrvalsdeeildinni í dag.
Leikurinn var Tottenham mikilvægur til að komast í fjórða sætið í deildinni sem gefur sæti í Meistaradeildinni. Heimamenn í Stoke City virtust ætla að skemma það fyrir þeim þegar þeir komust yfir með marki Steven N'Zonzi strax á þriðju mínútu. Félagið er 150 ára í dag og því mikið um dýrðir hjá stuðningsmönnum sem þökkuðu vel fyrir sig.
Bandaríkjamaðurinn Clint Dempsey jafnaði metin fyrir Tottenham stundarfjórðungi síðar. Scott Parker sendi þá á Aaron Lennon, Asmir Begovic kom út úr markinu en Mark Wilson ætlaði að spyrna boltanum í burtu sem tókst ekki betur en svo að hann fór fyrir fætur Dempsey sem skoraði af 30 metra færi.
Það voru svo aðeins 70 sekúndur liðnar af síðari hálfleik þegar Charlie Adam leikmaður Stoke fékk sína aðra áminningu og þar með rautt spjald svo heimamenn voru manni færri allan hálfleikinn.
Sigurmarkið skoraði Adebayor svo þegar átta mínútur voru eftir af leiknum eftir undirbúning Dempsey sem þrumaði fyrir markið. Adebayor er ekki í uppáhaldi hjá mörgum stuðningsmönnum Tottenham og sumir kalla hann Latibæ'or. Hann hefur þó reynst þeim vel í vikunni, skoraði gegn Chelsea um miðja vikuna og svo þetta mikilvæga mark í dag.
Gylfi Þór Sigurðsson spilaði síðustu sex mínútur leiksins.



