Manchester Utd 2 - 1 Swansea
1-0 Javier Hernandez ('39 )
1-1 Michu ('49 )
2-1 Rio Ferdinand ('87 )
1-0 Javier Hernandez ('39 )
1-1 Michu ('49 )
2-1 Rio Ferdinand ('87 )
Sir Alex Ferguson kvaddi Old Trafford með sigri Manchester United gegn Swansea í ensku úrvalsdeildinni í dag, þökk sé Rio Ferdinand sem skoraði 2-1 sigurmark Englandsmeistaranna þremur mínútum fyrir leikslok.
Þetta var síðasti heimaleikur Manchester United undir stjórn Alex Ferguson sem hættir sem knattspyrnustjóri félagsins eftir tímabilið, eftir tæp 27 ár í starfi.
Leikmenn beggja liða stóðu heiðursvörð fyrir sigursælasta knattspyrnustjóra Englands fyrir leikinn og fékk hann höfðingjalegar móttökur.
Heimamenn voru með undirtökin í fyrri hálkfleik og komust yfir á 39. mínútu með marki frá Javier Hernandez, og var staðan 1-0 í hálfleik.
Swansea vaknaði heldur betur til lífsins í seinni hálfleik og jafnaði á 49. mínútu þegar Michu skoraði fyrir gestina.
Swansea skapaði mikla hættu í kjölfarið og var oft nálægt því að komast yfir í leiknum. En það var síðan á 87. mínútu þegar Rio Ferdinand skoraði sigurmark Manchester United eftir hornspyrnu og fullkomnaði kveðjustund Ferguson. Þetta var fyrsta mark Ferdinand í yfir fimm ár.
Ferdinand var 20. markaskorari Manchester United á leiktíðinni. Um er að ræða met í ensku úrvalsdeildinni, aldrei hafa jafnmargir leikmenn skorað fyrir eitt og sama liðið.
