Fimm leikjum var að ljúka í ensku úrvalsdeildinni og þar unnu Norwich og Newcastle mikilvæga sigra í fallbaráttunni og munu halda sæti sínu í efstu deild á næstu leiktíð.
Norwich rúllaði yfir West Brom 4-0 og er nú með 41 stig, eins og Newcastle sem lagði QPR 2-1. Bæði lið klifruðu upp um fjögur sæti og eru nú í 12. og 13. sæti, og sloppin við fall.
Daniel Sturridge skaut Liverpool til sigurs gegn Fulham en hann skoraði öll þrjú mörk Liverpool í 3-1 sigri eftir að Dimitar Berbatov hafði komið Fulham yfir með fyrsta marki leiksins. Þetta var fyrsta þrenna Sturridge fyrir Liverpool.
David Moyes kvaddi Goodison Park með sigri þegar Everton lagði West Ham 2-0 í síðasta heimaleiknum á tímabilinu en Kevin Mirallas skoraði bæði mörkin. Leikmenn Everton stóðu heiðursvörð fyrir Moyes eftir leikinn sem tekur við Manchester United eftir tímabilið.
Þá skildu Sunderland og Southampton með 1-1 jafntefli og eru bæði lið enn í fallhættu. Sunderland er fjórum stigum frá fallsæti en Southampton er fimm stigum frá fallsæti. Wigan er í 18. sæti en á tvo leiki eftir á meðan önnur lið í fallbaráttunni eiga einn leik eftir.
Norwich 4 - 0 West Brom
1-0 Robert Snodgrass ('25 )
2-0 Grant Holt ('62 )
3-0 Gareth McAuley ('66 , sjálfsmark)
4-0 Jonathan Howson ('90 )
Everton 2 - 0 West Ham
1-0 Kevin Mirallas ('6 )
2-0 Kevin Mirallas ('60 )
Fulham 1 - 3 Liverpool
1-0 Dimitar Berbatov ('33 )
1-1 Daniel Sturridge ('36 )
1-2 Daniel Sturridge ('62 )
1-3 Daniel Sturridge ('85 )
QPR 1 - 2 Newcastle
1-0 Loic Remy ('11 , víti)
1-1 Hatem Ben Arfa ('18 , víti)
1-2 Yoan Gouffran ('35 )
Rautt spjald:Rob Elliot, Newcastle ('81)
Sunderland 1 - 1 Southampton
1-0 Phil Bardsley ('68 )
1-1 Jason Puncheon ('76 )



