Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 12. maí 2013 18:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Ferguson: Vildi hætta sem sigurvegari
,,Þetta er æðislegt. Þvílíkar kveðjur. Ég babblaði þarna í smástund og andrúmslofið var ótrúlegt. Ég er mjög stoltur af stuðningsmönnum mínum, þeir hafa verið frábærir," sagði Ferguson eftir kveðjustund sína á Old Trafford í dag. Í kjölfarið lyfti hann Englandsmeistarabikarnum.

Manchester United lagði Swansea 2-1 í síðasta heimaleik liðsins undir stjórn Ferguson sem lætur af störfum sem knattspyrnustjóri félagsins eftir tímabilið.

Fékk hann höfðingjalegar móttökur fyrir leik og eftir leikinn kvaddi hann stuðningsmenn sína með tilfinningaríkri ræðu.

Hann hefur starfað á Old Trafford í tæp 27 ár og unnið 13 meistaratitla með félaginu. Það var sorgarstund í herbúðum Manchester United þegar hann tilkynnti síðastliðinn miðvikudag að hann muni hætta eftir tímabilið.

,,Ég tók ákvörðunina um að hætta um síðustu jól. Hlutirnir breyttust eftir að systir eiginkonu minnar lést. Hún missti bestu vinkonu sína, systur hennar. Einnig vildi ég hætta sem sigurvegari," sagði Ferguson.

,,Það var erfitt að halda þessu leyndu. Stundum lak þetta út til fjölskyldunnar, synir okkar komust að þessu í mars. Ég sagði bróður mínum ekki frá þessu fyrr en á þriðjudaginn."

,,Mikilvægatsta afrekið var að vinna fyrsta meistaratitilinn og dyrnar opnuðust eftir það. Við héldum áfram að stækka og höfum átt frábær lið."

,,Ég mun hafa mikið að gera. Sonur minn Jason hefur skipulagt hluti, ég mun ekki sitja kyrr."

Slapp
banner
banner
banner