Troy Deeney, sóknarmaður Watford, var hetja liðsins í ótrúlegum sigri gegn Leicester í dag. Hann skoraði mark í uppbótartíma sem kom liðinu í úrslit umspilsins um laust sæti í úrvalsdeildinni.
Hann hóf ekki tímabilið þar sem hann var í fangelsi eftir líkamsárás.
Hann hóf ekki tímabilið þar sem hann var í fangelsi eftir líkamsárás.
„Það var ekki möguleiki á því að ég væri að fara að klúðra þessu," sagði Deeney eftir leikinn.
Gianfranco Zola er stjóri Watford og var í skýjunum með sigurinn. Hann fagnaði sigurmarkinu af lífi og sál og datt í látunum.
„Ég tapaði mér, ég vissi ekki hvert ég var að fara eða hvað ég var að gera," sagði Zola.
Sjá einnig:

