AC Milan hefði með sigri gegn Roma í Serie A í kvöld tryggt sér í undankeppni Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð, en allt kom fyrir ekki og lauk leiknum með markalausu jafntefli.
AC Milan lék meiri hluta leiks einum leikmanni færri eftir að Sulley Muntari fékk beint rautt spjald á 41. mínútu.
AC Milan lék meiri hluta leiks einum leikmanni færri eftir að Sulley Muntari fékk beint rautt spjald á 41. mínútu.
Roma tókst ekki að nýta sér liðsmuninn í kjölfarið en í uppbótartíma varð jafnt í liðum þegar Francesco Totti fékk einnig að líta beint rautt spjald.
Það ræðst því í loka umferðinni hvort AC Milan eða Fiorentina lýkur mótinu í þriðja sæti deildarinnar.
Fyrr í dag vann Bologna 2-0 sigur á Parma.
Parma 0 - 2 Bologna
0-1 Saphir Taider ('6 )
0-2 Davide Moscardelli ('76 )
AC Milan 0 - 0 Roma
Rautt spjald: Sulley Muntari, AC Milan ('41), Francesco Totti, Roma ('90)




