,,Ég lifi í draumi mér sýnist Jóhann Laxdal skora" syngur Silfurskeiðin um bakvörðinn markheppna, Jóhann Laxdal og það átti svo sannarlega við í kvöld. Jóhann skoraði tvö mörk í 3-2 sigri Stjörnunnar á Víkingum.
,,Ég skora bara gegn liðum sem ríma við lagið svo við þurfum að fara mæta fleiri liðum sem enda á Vík," sagði Jói aðspurður út í mörkin tvö og lagið.
,,Í seinna markinu ætlaði ég að vera gjafmildur og gefa á Kennie Chopart, en ég er aldrei með góðar sendingar, svo ég þurfti að hirða frákastið eins og alvöru senter," lýsti Jóhann aðdragandum í öðru marki hans og þriðja marki Stjörnunnar í leiknum.
,,Ég skoraði ekki eitt mark á síðasta tímabili. En núna er ég loksins að fá boltann og það er fínt. Það sýndi sig í leiknum að það þarf að gefa meira á mig," sagði Jóhann sem er ánægður með að fyrsti sigurinn sé kominn í hús og hann var ánægður með spilamennskuna hjá liðinu í leiknum,
,,Það er alltaf gott að ná fyrsta sigrinum. Við sýndum í dag að við erum með gott spilandi lið. Það er reyndar alltaf sömu aula mörkin sem við fáum á okkur, en við verðum bara að læra af þeim," sagði Laxdal bróðirinn yngri.
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















