Heimild: BBC
Þá er komið að daglegum slúðurpakka í boði Powerade en þar er búið að taka saman helsta slúðrið í ensku miðlunum.
Manchester United er að undirbúa 30 milljón punda tilboð í Karim Benzema framherja Real Madrid sem á að leya hlutverk Wayne Rooney sem er á förum. (Sun)
Marouane Fellaini miðjumaður Everton vill prófa sig gegn þeim bestu í Evrópu í Meistaradeildinni og gæti farið með David Moyes knattspyrnustjóra til Manchester United. (Metro)
Liverpool er í viðræðum um að kaupa Lucas Digne vinstri bakvörð Lille sem er metinn á 8 milljónir punda. (Sunday People)
Fyrsta verkefni David Moyes hjá Man Utd verður að semja við Wayne Rooney sem vill yfirgefa félagið eftir ósætti við Sir Alex Ferguson um lífstíl sinn. (Sunday Express)
Frank Lampard vill vera áfram hjá Chelsea þrátt fyrir að verða samningslaus í sumar. (Sun)
Tottenham hefur sett Christian Benteke framherja Aston Villa efstan á óskalista sinn í sumar. (Sunday Mirror)
Tottenham er líka að setja saman 10 milljón punda tilboð í James McCarthy leikmann Wigan til að styrkja miðjuna. (Sunday People)
Jose Mourinho sem tekur við Chelsea í sumar mun taka Sami Khedira með sér frá Real Madrid. (Sunday Mirror)
Brottför David Moyes úr stóli knattspyrnustjóra með spara Everton 10 milljónir punda sem eftirmaður hans fær til leikmannakaupa. (Mail on Sunday)
Monaco sem var að komast upp í efstu deild Frakklands er tilbúið að kaupa kólumbíska framherjann Radamel Falcao frá Atletico Madrid á 50 milljónir punda. (Sunday Telegraph)
Andy Carroll framherji Liverpool er tilbúinn að taka á sig launalækkun til að fá að snúa aftur heim til Newcastle. (Sunday Mirror)
Roberto Mancini knattspyrnustjóri Manchester City verður rekinn innan tveggja vikna og Manuel Pellegrini hjá Malaga á að taka við starfinu hans. (Mail on Sunday)
Manuel Pellegrini stjóri Malaga hefur náð samkomulagi við Manchester City um að taka við starfi Roberto Mancini en greiða þarf 3,3 milljónir punda fyrir hann samkvæmt klásúlu í samningi. (Sunday Times)
Sir Alex Ferguson mun fá verðlaunin knattspyrnustjóri ársins hjá samtökum knattspyrnustjóra. (Sunday Mirror)
Everton ætlar að fá að ræða við Malky Mackay stjóra Cardiff City um að taka við starfi David Moyes þegar hann hættir. (Sunday Telegraph)



