Allt stefndi í framlengingu þegar komið var að uppbótartíma í leik Watford og Leicester í undanúrslitum umspils Championship-deildarinnar, staðan samtals 2-2. Hér að neðan má sjá ótrúlegan lokakafla leiksins.
Þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma og uppgefinn viðbótartíma fékk Leicester umdeilda vítaspyrnu.
Antony Knockaert, 21 árs Frakki, steig á punktinn en Manuel Almunia, markvörður Watford varði. Boltinn barst aftur Knokcaert en aftur varði Almunia.
Watford fór í sókn og skoraði mark sem tryggði liðinu sæti í úrslitaleiknum á Wembley, Sóknarmaðurinn Troy Deeney skoraði og allt ætlaði um koll að keyra á vellinum.


