Viking komst í annað sæti norsku úrvalsdeildarinnar í dag eftir 2-1 sigur á Start í Íslendingaslag. Indriði Sigurðsson lék allan leikinn með sigurliðinu á meðan Jón Daði Böðvarsson lék síðustu tólf mínúturnar.
Á móti þeim spiluðu Guðmundur Kristjánsson og Matthías Vilhjálmsson í liði Start. Babacar Sarr, fyrrum leikmaður Selfoss, skoraði sjálfmark í uppbótartíma sem tryggði Viking sigur.
Á móti þeim spiluðu Guðmundur Kristjánsson og Matthías Vilhjálmsson í liði Start. Babacar Sarr, fyrrum leikmaður Selfoss, skoraði sjálfmark í uppbótartíma sem tryggði Viking sigur.
Birkir Már Sævarsson og félagar í Brann töpuðu 2-0 fyrir toppliði Strömsgodset og misstu þar að leiðandi Viking upp fyrir sig.
Þórarinn Ingi Valdimarsson, Guðmundur Þórarinsson og Ágeir Börkur Ágeirsson voru allir í byrjunarliði Sarpsborg sem steinlá fyrir Tromsö 5-0.
Hvorki gengur né rekur hjá meisturunum í Molde sem eru enn á botni deildarinnar eftir markalaust jafntefli við Sandnes Ulf. Steinþór Freyr þorsteinsson lék allan leikinn með Sandnes Ulf.



