Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 12. maí 2013 17:45
Sebastían Sævarsson Meyer
Paul Scholes: Rétti tíminn til að fara
Líkt og Sir Alex Ferguson þá kvaddi Paul Scholes Old Trafford í dag en hann mun leggja skóna endanlega á hilluna eftir leiktíðina.

Mannchester United lagði Swansea 2-1 í síðasta heimaleik tímabilsins og eftir leikinn fékk liðið Englandsmeistarabikarinn afhentan.

,,Þessi dagur hefur verið góður, við unnum leikinn og það var það sem skipti máli. Við munum fagna í kvöld og vonandi munu þessir leikmenn vinna fleiri titla á næstu árum," sagði Scholes.

,,Það var bara ánægjulegt að komast í gegnum leikinn. Sir Alex gerði þetta vel, hann talaði mjög vel og hann hefur gert frábæra hluti hérna."

,,Ég veit að þetta er rétti tíminn fyrir mig til að fara. Þetta hefur ekki verið þannig tímabil eins og ég hefði viljað hafa það persónulega, en við unnum deildina og þetta er frábær dagur."

Slapp
banner