Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 12. maí 2013 21:10
Sebastían Sævarsson Meyer
Pepsi-deildin: Baldur sá um Keflavík - Stjarnan lagði Víking Ó.
Baldur Sigurðsson skaut KR til sigurs.
Baldur Sigurðsson skaut KR til sigurs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldur Sigurðsson skaut KR til sigurs í Keflavík á meðan Stjarnan vann nauman sigur á nýliðum Víkingi Ólafsvík í síðustu leikjum kvöldsins.

KR bar 2-0 sigurorð á Keflavík á útivelli þar sem Baldur Sigurðsson skoraði bæði mörk KR-inga og er liðið með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina. Keflvavík er hins vegar enn án stiga.

Víkingur Ólafsvík er einnig enn á eftir sínum fyrstu stigum en liðið lá úti fyrir Stjörnunni 3-2. Jóhann Laxdal skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna og Halldór Orri Björnsson skoraði eitt. Fyrir Víking skoruðu Björn Pálsson og Damir Muminovic.

Keflavík 0 - 2 KR
0-1 Baldur Sigurðsson ('30)
0-2 Baldur Sigurðsson ('55)

Stjarnan 3 - 2 Víkingur Ólafsvík
1-0 Halldór Orri Björnsson ('11)
2-0 Jóhann Laxdal ('14)
2-1 Björn Pálsson ('49)
3-1 Jóhann Laxdal ('72)
3-2 Damir Muminovic ('90)
Slapp
banner