Heimild: BBC
Nú þegar flestir eru að mæra Sir Alex Ferguson í blálokin á ferli hans í knattspyrnustjórastóli Manchester United tekur Harry Redknapp knattspyrnustjóri QPR annan pól í hæðina og segir dómara hrædda við þennan 71 árs gamla Skota.
Manchester United tilkynnti í vikunni að Sir Alex muni hætta í stóli knattpsyrnustjóra og að David Moyes stjóri Everton taki við liðinu 1. júlí.
,,Margir dómarar voru óttaslegnir og hræddir við að æsa hann," sagði Redknapp við Radio 5 Live Sportsweek á BBC í morgun.
,,Það er ára í kringum hann því hann er sigurvegari. Ég hef aldrei efast um það. Ef það átti að bæta smá tíma við þá pössuðu þeir á að gera það rétt því þeir vildu ekki æsa hann upp."
,,Sérstaklega ungu dómararnir, og jafnvel einhverjir af þeim eldri, voru pínulítið hræddir við að æsa hann upp."




