,,Hann er ótrúlegur hann Baldur og skorar alveg hérna í Keflavík, það er alveg merkilegt," sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR eftir 2-0 sigur í Keflavík í kvöld en Baldur Sigurðsson skoraði bæði mörkin.
,,Frábær tvö mörk hjá honum og frábær sigur. Ég er gríðarlega ánægður með framlag strákanna. Ánægður með leik liðsins í heild sinni. Auðvitað hefði maður viljað sjá fallegri spilkafla en aðstæður buðu ekki upp á það."
,,Við pössuðum okkur á því að vera ekki að taka of mikla sénsa en ég tel okkur hafa unnið mjög sanngjarnan sigur."
Nánar er rætt við Rúnar í sjónvarpinu að ofan.























