Malaga 0 - 0 Sevilla
Malaga og Sevilla skildu með markalausu jafntefli í lokaleik dagsins í spænsku úrvalsdeildinni.
Leikurinn var nokkuð jafn og geta bæði lið sætt sig við eitt stig.
Malaga er í sjötta sæti með 54 stig en Sevilla er með 47 stig í áttunda sæti og á enn möguleika á sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.




