Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 12. maí 2013 15:09
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Heimasíða Hauka 
Úlfar Hrafn heim í Hauka (Staðfest)
Úlfar Hrafn Pálsson.
Úlfar Hrafn Pálsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Úlfar Hrafn Pálsson hefur skrifað undir lánssamning þess efnis að hann spilar með Haukum í 1.deildinni í sumar. Hann kemur til Hauka frá Val. Frá þessu er greint á heimasíðu Hauka.

Úlfar þekkir vel til í Haukum, enda hefur hann spilað allan sinn ferill með Haukum fyrir utan síðasta ár, er hann lék með Val í Pepsi-deild karla. Úlfar er 24 ára örvfættur og getur bæði leikið í stöðu bakvarðar og á kanti.

Hann hefur á sínum ferli spilað 117 meistaraflokksleiki, þar af 103 með Haukum og skorað 15 mörk. Í fyrra spilaði hann 13 leiki með Val í Pepsi-deild karla.

Hann verður í löglegur með Haukum gegn Víkingi R. í bikarkeppni KSÍ á morgun. Sá leikur hefst klukkan 19:00 og fer fram á Víkingsvelli.
Slapp
banner