Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 12. maí 2013 18:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Van Persie: Mikill heiður að hafa unnið með Ferguson
,,Þetta skiptir mér miklu máli. Ég hefði ekki getað óskað eftir betra ári, þetta er ótrúlegt. Aðeins í mínum viltustu druamum hefði ég getað ímyndað mér þetta," sagði Robin van Persie eftir að hafa unnið sinn fyrsta meistaratitil á Englandi.

Robin van Perise á stóran þátt í velgengni Manchester United á tímabilinu en í dag lék liðið í síðasta sinn undir stjórn Alex Ferguson á Old Trafford í 2-1 sigri gegn Swansea.

Ferguson hættir sem knattspyrnustjóri félagsins eftir tímabilið og hefur það verið mikill heiður fyrir Van Perise að spila undir stjórn hans.

,,Það var sorgardagur. Allir skilja þetta og allir eru honum þakklátir. Það var mikill heiður fyrir mig að fá að vinna með honum í ár. Þetta var bara eitt ár en hann hefur haft mikil áhrif. Hann er ótrúlegur einstaklingur," bætti Van Persie við.

,,Hann er jafnvel besti knattspyrnustjóri sögunnar og hann er svo æðisleg persóna. Það var varla hægt að sjá á honum að hann væri að hætta eftir tímabilið, hann var svo einbeittur fyrir leikinn."
Slapp
banner
banner