Ejub Purisevic, þjálfari Víkings frá Ólafsvík, stefnir á að fá þrjá nýja leikmenn til félagsins áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti á miðvikudag.
Ólafsvíkingar töpuðu 3-2 gegn Stjörnunni í kvöld og hafa nú tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í Pepsi-deildinni.
Víkingur stefnir á að fá þrjá nýja leikmenn í vikunni en um er að ræða miðvörð og tvo leikmenn sem spila framarlega á vellinum. Allir leikmennirnir koma erlendis frá.
,,Ég vona að við fáum þrjá nýja leikmenn. Við erum með menn í sigtinu, þeir eru ekki ennþá komnir en vonandi skila þeir sér," sagði Ejub eftir leikinn í kvöld.
Ejub segist hafa rætt við íslensk félög um að fá leikmenn á láni en án árangurs.
,,Já, við höfum gert það. Ég taldi mig hafa krækt í einn leikmann í fyrradag en þetta gengur erfiðlega. Við erum kannski of vongóðir að vonast eftir að fá fleiri leikmenn," segir Ejub en hann segir erfitt að fá leikmenn til Ólafsvíkur í ár.
,,Við höfum ekki átt í vandamálum með að fá menn í sveitina í gegnum tíðina , ég myndi ekki segja það. Nú erum við í allt annarri deild og þetta er smá öðruvísi. Það gekk ekki eins og við vildum að styrkja hópinn. Þetta hefur verið erfiðara en við héldum."



